Í dag var haldin hundasýning á vegum HRFÍ. Ég fór og sýndi þar þrjá hunda, þau Ópal, Primu og Villa (bróður hennar Primu). Öll fengu þau góða dóma, Ópal fékk very good og annað sæti í opnum flokki tíka, Prima var besta tík í hvolpaflokki 4-6 mánaða og Villi besti rakkinn í sama flokki og kepptu þau tvö svo um titilinn besti hvolpur tegundar 4-6 mánaða sem hann Villi vann. Villi fór svo í úrslit og endaði sem 4. besti hvolpur sýningar. Hér á myndinni
|