Enskur Cocker Spaniel
Enski cocker spaniel hundurinn telst til vinsælustu hundakynja heimsins.
Hann tilheyrir fælandi og sækjandi fuglahundum (flushing and retrieving) og er með einstakt þefskyn, sem gerir hann m.a. að frábærum leitarhundi. Cockerinn er síglaður, taugasterkur, tilbúinn að vinna, leika og falla inn í lífsmunstur eiganda síns, hvort sem er í útivist eða heimavið. Þessir eiginleikar gera hann að svo vinsælum heimilishundi. Vegna kátrar skapgerðar og skottsins, sem er alltaf á iði, hefur hann viðurnefnið "The merry cocker" í heimalandi sínu, Bretlandi.
Cockerinn á að vera þéttvaxinn og sterklegur, vel vöðvafylltur og með góða heildarsamsvörun í byggingu. Hreyfingar eiga að vera sterklegar með góðri viðspyrnu og yfirferð, feldurinn sléttur og silkimjúkur. Litir eru fjölbreytilegir, bæði einlitir og mislitir.
Feldurinn þarfnast burstunar a.m.k. tvisvar í viku og baða þarf hundinn reglulega. Snyrta þarf feldinn á 6-8 vikna fresti.
Enski cockerinn er kraftmikill hundur sem þarfnast hreyfingar á hverjum degi, helst um klukkustund á dag. Hann er afar úthaldsgóður og duglegur og hentar vel fólki sem hefur gaman af hvers konar útivist, hvort sem það eru fjallgöngur eða langir göngutúrar. Hann er jafnframt rólegur og þægilegur á heimili og afar barngóður. Hann hefur jafn mikið yndi af leik með krökkunum og kúri upp í sófa.