Feldhirða Enska Cockersins
Eins fallegur og vel snyrtur Enskur Cocker er, þá getur verið þeim mun erfiðara að halda feldinum fallegum, því hann er mestur þar sem hann flækist best.
Feldurinn á að vera sléttur og silkimjúkur, ekki of liðaður, ekki of mikill og ekki hrokkinn. Nægar fjaðrir skulu vera á framfótum, bol og á afturfótunum fyrir ofan hælliðinn. Þetta hljómar nógu einfalt, en getur kostað mikla vinnu, sérstaklega ef ætlunin er að hafa hundinn í sýningarfeldi.
Þó fæstir cockerar séu sýningarhundar þarfnast feldurinn á öllum cocker spaniel hundum samt sem áður töluverðrar umhirðu. Þetta er atriði sem þarf að taka með í reikninginn þegar hundurinn er valinn því fátt er leiðinlegra að sjá en cocker með flæktan og vanhirtan feld. Vel hirtur feldur ber eigandanum gott vitni og stuðlar að vellíðan hjá hundinum.
Almennt um feldhirðu á enskum cocker
Hvort sem maður vill hafa cockerinn sinn í sýningarfeldi eða ekki er það hluti af tegundartýpísku útliti cockersins að hafa feld sem er langhærður á vissum stöðum og snyrtur á ákveðinn hátt. Þessu fylgir að það er hluti af daglegri umhirðu hundsins að fara yfir feldinn, bursta hann og gæta þess að flókar myndist ekki sem erfitt getur verið að leysa úr. Einnig er nauðsynlegt að snyrta feldinn með rakvél og skærum a.m.k. á 8 vikna fresti og er þá hægt að fara með voffann á hundasnyrtistofu eða læra að snyrta sjálfur, sem getur verið skemmtilegt en tekur óneitanlega þónokkurn tíma að komast upp á lagið með.
Fyrir þá sem alls ekki geta hugsað sér þessa lágmarks feldhirðu er sá möguleiki fyrir hendi að raka eða klippa alveg niður feldinn á hundinum en þá missir hann óneitanlega mikið af sínu tegundarútliti. Eftir að búið er að raka feldinn niður einusinni er erfitt að ætla að láta hundinn safna sýningarfeldi, vegna þess feldurinn er óskaplega lengi að verða eins og hann var. Sumir vilja meina að hárafarið breytist, en ég held að þetta sé allt spurning um þolinmæði og mikla vinnu að ná feldinum aftur góðum.
Liturinn á feldinum hefur yfirleitt mikið að segja um hversu þykkur og mikill feldurinn er. Einlitu hundarnir eru að jafnaði með mun meiri feld en mislitir og dökkir með þykkari en ljósir.
Cocker spaniel fer jafnt og þétt úr hárum allan ársins hring og til að minnka hárlos heima við er mikilvægt að vera duglegur að bursta hundinn og einnig að baða hann með sjampói og blása með hárþurrku öðru hvoru. Við það losnar mikið af dauðu hári og feldurinn verður loftmikill og glansandi.
Í almennri feldhirðu felst einnig að klippa klær og hreinsa tennur en mjög leiðinlegt er að sjá þegar jafnvel ungir hundar eru komnir með mikinn tannstein. Tannsteinninn veldur andremmu og getur einnig valdið tannholdsbólgum og tannskemmdum. Hægt er að skafa tannstein af með tannsköfu ef hann er að byrja að myndast.
Allt það sem minnst er á hér að ofan krefst þess að hundurinn sé vaninn við það frá unga aldri að vera settur t.d. upp á borð með handklæði undir sér, burstað í gegnum feldinn, tennur skoðaðar og klærnar klipptar. Ef maður er duglegur við þetta getur það sparað mikla fyrirhöfn og vandræði seinna meir, það sparar dýralæknum, hundasnyrtum og öðru fagfólki mikla vinnu, því ekki er skemmtilegt að slást við fullvaxinn hund uppi á borði.
Að lokum vil ég benda á að það er alveg sama hvað maður snyrtir, baðar og burstar feldinn; hann verður aldrei fallegur nema að hundurinn sé heilbrigður og fái gæða fóður að borða. Mismunandi fóður getur hentað mismunandi hundum og maður getur þurft að prófa sig áfram en yfirleitt finnur maður rétta fóðrið á endanum.
Persónulega nota ég alltaf Royal canin, stundum venjulegt adult fóður og stundum tegundafóðrið fyrir cocker. Ég gef hundunum mínum líka gjarnan heimatilbúið hráfæði stöku sinnum og persónulega held ég að holt sé fyrir hvolpa að fá að prófa allskonar mannamat til að styrkja ónæmiskerfið, en þá er að sjálfsögðu mikilvægt að lesa sér til um hvaða matur getur verið skaðlegur fyrir hunda.
Margir ræktendur gefa ráðleggingar um hvert sé best að fara með hundinn í snyrfingu og geta jafnvel gefið ráðlegingar sjálfir um hvernig skal halda feldinum við. Ég er sjálf hundasnyrtir og tek að mér bæði að snyrta enskan cocker og eins að kenna fólki að viðhalda fallegum feldi, og tek glöð á móti fyrirspurnum sem varðar feldhirðu enska cockersins.