Um Dagstjörnu
Ég heiti Jóhanna Íris og hef alltaf verið mjög hrifin af dýrum. Ég ólst upp í Eyjafjarðarsveit, og eyddi mestum tíma í útihúsunum og þá oftast með labrador/íslenska blendinginn Lappa með mér. Haustið 2008 byrjaði ég að vinna á Dýraspítalanum í Víðidal og sá ég þá fljótlega að ekki þýddi að vinna við að ráðleggja fólki með hunda og hundauppeldi en hafa ekki einu sinni prófað að ala upp hund sjálf. Og þá hófst leitin að réttu hundategundinni. Í byrjun árs 2009 var ég stödd á Stórhundasýningu í Garðheimum þegar ég rakst á Tage, svartan cocker og Vidda, rauðan son hans. Ég varð gjörsamlega heilluð af Tage. Ég fór heim og fann heimasíðuna hjá ræktandanum hans og komst að því að von var á goti hjá þeim í maí. Ég var sett á biðlista og var ég þá að vonast eftir svartri tík.
8. maí fæddust svo hvolparnir. Ég fékk Rökkvu mína í hendurnar 8 vikum seinna. Og þar með hófst ævintýrið.
Ég lærði hundasnyrtinn árið 2010. Fyrsta gotið fæddist 23. febrúar 2012, fimm hvolpar í heildina, 2 svartar tíkur, 1 black og tan rakki og 2 black og tan tíkur. Sjálf hélt ég eftir annarri svörtu tíkinni, en er í góðu sambandi við eigendur allra hinna hvolpanna.
Fjölskyldan hefur stækkað aðeins síðan ég ákvað að halda Ópal eftir, en ég fékk köttinn Gosa vorið 2012, sumarið 2014 bættist við Hólabergs Prima, og í júlí 2015 fékk ég Welsku Corgi tíkina Irmu.
Í dag eru einungis Príma og Irma eftir hjá mér ásamt kettinum Gosa og nokkrum skrautfiskum.