Það er svosem fátt í gangi hjá okkur Dagsjörnunum. Tókum nokkrar myndir í gær, við mjög misjafnar undirtektir... Rökkvu fannst þetta fínt eins og sést á þessarri mynd...
En Ópal var ekki alveg jafn viss...
Og Gosi var hreint ekki að fíla þetta...
Annars er yfirvofandi flutningur hjá okkur, við vorum að kaupa okkur íbúð í Fögrubrekku í Kópavoginum, en við erum búin að vera búsett í Salahverfinu síðasta hálfa árið... Verður voðalega fínt að komast í stærri íbúð, sérstaklega ef við stefnum á annað got ;)