Það fjölgar á heimilinu okkar í maí. Við fórum í heimsókn í gær til Hólabergs ræktunar að skoða hvolpaskottin (by the way þá eru tveir gorgeous rakkar þar að leita sér að framtíðarheimilum.) En við ætluðum bara aðeins að kíkja á krílin og ég aðeins að snyrta Chanel (mömmu þeirra) en það endaði bara ekki öðruvísi en svo að við erum að fá eina skvísuna úr gotinu um miðjan maí :D Ég hendi inn mynd af skvísunni um leið og ég get, en það verður skrítið að vera með tvílitann hund, því ég hef alltaf viljað frekar halda mig við þessa einlitu ;) en það verður bara gaman, foreldrar litlu snúllunnar eru bæði íslenskir meistarar svo ég bind góðar vonir við hana í framtíðinni i sýningarhringnum ;)
|