Eins og staðan er núna eru Irma og Príma einu hundarnir á heimilinu. Og þar sem þær eru ennþá of ungar til að koma með hvolpa, verður ekki got hjá mér fyrr en vonandi á næsta ári. En þessar tvær eru algjörir gleðigjafar og endalaust gaman að hafa þær í kringum sig. Ef spurningar vakna er velkomið að hafa samband við mig.
Nú eru þessir yndislegu hvolpar allir komnir með heimili og eru að fara að heiman í dag og á morgun. Það verður bæði gaman að fá að fylgjast með þeim á nýju heimilunum og eins ótrúlega erfitt að sjá á eftir þeim.
En þá einbeitum við okkur bara að nýjasta fjölskyldumeðliminum henni Irmu. Irma er Welskur Corgi Pembroke og kom til okkar fyrir 2 vikum. Algjört æði í alla staði ;) Núna eru ekki nema 3 dagar í afhendingu og Michael Jackson er ennþá að leita sér að framtíðarheimili. Hann er ofur ljúfur og rólegur.
Við erum einu ræktendurnir á landinu sem stendur sem erum með svarta enska cockera og er þetta síðasta gotið okkar í bili með þennan lit. Svo ef þig eða einvhern sem þú þekkir langar í yndislegan og ljúfan svartan cocker strák, þá er þetta síðasti séns ;) Nú fer hver að verða síðastur að ná sér í svona gullmola. Jackson er einn eftir af 7 systkinum. Hann er rólegur og blíður og algjör kúrukall... Hann verður tilbúinn til afhendingar þann 31. júlí, og þá búinn að fá fyrstu bólusetninguna, ormahreinsaður, örmerktur og með startpakka frá Royal canin.
Jæja eitthvað hafa aðstæður breyst, og eru því Tina og Cyndi aftur í leit að heimilum. Jackson og Tina vilja helst komast á sýningarheimili, en Cyndi ætlar bara að fá að vera gæludýr ;) Cyndi Lauper
Stevie og Jackson eru ennþá að leita sér að heimilum. Jackson myndi gjarnan vilja komast á heimili þar sem hann verður sýndur, en Stevie ætlar bara að fá að vera gæludýr ;)
Nú eru hvolparnir orðnir 4 vikna og farnir að hlaupa um á fullu. Jackson og Sting eru ennþá að leita sér að framtíðar heimilum, og vegna óviðráðanlegra aðstæðna er ein tík eftir líka, hún Cyndi Lauper. Ef áhugi er fyrir hendi eru þessi yndi meira en til í að fá fólk í heimsókn. Þau elska knús ;)
Á sunnudaginn verða þessi yndi 2ja vikna... alveg ótrúlegt hvað tíminn líður. En þau eru ekkert að flýta sér að opna augun. Tina var fyrst til og kíkti á heiminn á þjóðhátíðardaginn sjálfann. Jackson er að hugsa um að opna augun í dag ;) Jackson Tina
Við höfum ákveðið að nefna hvolpana úr þessu goti eftir 80's söngvurum. Dagstjörnu Madonna, Dagstjörnu Bonnie Tyler, Dagstjörnu Tina Turner, Dagstjörnu Stevie Wonder, Dagstjörnu Sting, Dagstjörnu Michael Jackson og Dagstjörnu Cindy Lauper. Dagstjörnu Sting 3ja daga gamall
|